14. nóvember 2007 klukkan 14:56
Ég hef ákveðið að hætta með þessa síðu!! Ástæðan
mun vera sú að þrátt fyrir góðar heimsóknir að þá
fékk ég bara of fá comment sem að náttlega
hvetur mann ávallt áfram!! Ég minni hins vegar á
myspace síðuna mína www.myspace.com/indica85
Ég þakka ykkur fyrir komuna allir sem að mig
þekkja & gangi ykkur vel með allt saman :D Kv. Íris Dögg
Íris Dögg Guđjónsdóttir
08. nóvember 2007 klukkan 19:24
Hæhæ...jæja ég veit að ég er ekki nógu dugleg að blogga hérna, en hef bara verið of upptekin við myspaceið undanfarið & skólann. Ég fór í Njáluferð í dag með íslensku áfanganum í skólanum. Ég & Anna Björg vorum allan tíman saman & þetta var köld en fín ferð. Það besta var er ég sofnaði langa ferðina heim. Skólinn gengur vel en ég veit ég get samt gert mun betur en ég er að gera. Svo að ég hef 3 vikur til þess að taka mig á. Jebb, mikið rétt það eru ekki meira né minna en 3 vikur eftir af skólanum þessa önn. Ekki minna mig einu sinni á hversu mikið ég á eftir í heildina. Munið svo að það styttist í afmælið mitt!!! wooooaahhh 22 ára :D Enda líka nóvember mánuðurinn aðal mánuðurinn í fjölskyldunni eins & margur veit!! Mig hlakkar ekkert það mikið til jólanna þar sem að ég er ekki mikið jólabarn. Ég er að spá í að stofna fastan reikning í ár og fara svo út til sólarlanda næstu jól. Mig langar ein en ég veit ekki hvort að svo verður eða hvað!! Látið alla einhleypu sætu & góðu strákana vita ;) Ég er enn ein & stundum er það gott mál & stundum erfitt. Sem betur fer oftar gott mál. Þar sem að ég hef ekki ennþá hitt góðan strák sem að ég á skilið. Ef að guð leyfir :) En ég ætla að fara að borða þ.e.a.s ef að maginn minn leyfir (hann er farin að vera svolítið leiðinlegur við mig) Au revoir
Íris Dögg Guđjónsdóttir
19. október 2007 klukkan 09:31
Jæja...nú er kominn dálítill tíma síðan að ég bloggaði seinast!! Allir ÉG ER KOMIN MEÐ MYSPACE!!! Endilega kíkið www.myspace.com/indica85 þess má geta að Indica er nafnið sem að ég átti áður en ég var ættleidd. Skólinn gengur bara frábærlega og hann klárast eftir c.a 6 vikur - fljótt að líða. Valið fyrir næstu önn er byrjað og ég verð í svipuðum áföngum þá. Nema það að ég klára dönskuna þá. Ég fer orðið á hverjum degi í ræktina & er byrjuð að lyfta. Er búin að vera sum sé mergjað dugleg enda hef ég verið að sálast úr harðsperrum seinustu daga. Í dag er ég að drepast í vinstri höndinni en ég held að ég hafi bara sofið illa. En þarf að fara, I'm a busy girl! Er í dönsku tíma núna & þarf að fara að fylgjast betur með myndinni sem að við erum að horfa á svo later my friends ;)
Íris Dögg Guđjónsdóttir
24. september 2007 klukkan 10:14
In The Garden Of Eden, As Everyone Knows, Lives Adam And Eve, Without Any Clothes.
In This Garden, Were Two Little Leaves, One Covered Adam's, One Covered Eve's.
As The Story Goes On, Nevertheless To Say, The Wind Came Along, And Blew The Leaves Away.
At The Sight, Adam Did Stare, There Was Eve's Treasure All Covered With Hair.
And Wonder Came, Under Eve's Eyes, As Adam's Thing, Started To Rise.
They Found A Spot. That Suited Them Best. A Nice Big Tree, Where They Began To Rest.
Her Legs Spread Wider, And Wider Apart, While Thrill After Thrill, Came Into Her Heart.
The Head Of Adam's Thing, Peeked Into The Hole, And Filled Her With Passion, Beyond Her Control.
His Thing Did Slide, And Eve's Treasure, Was All Wet Inside, The Joy Was Good, She Wouldn't Let Loose, Until Adam's Thing, Was All Out Of Juice. |

Íris Dögg Guđjónsdóttir
21. september 2007 klukkan 09:03
Hæhæ....long time no blogg...

Ég veit að ég er mjög ódugleg í að blogga um eitthvað sérstakt eins & margur gerir...ég veit að það er engin afsökun en samt sem áður að þá er ég góður pælari en þeir hlutir sem að ég pæli í eru voðalega flóknir...ég er þannig manneskja að ég er góður penni þegar að tilfinningar mínar eru á hæsta stigi, annað hvort á slæman eða góðan hátt. Oftast þegar að ég er í tilfinningatjóni að þá finnst mér bara best að skrifa í mína dagbók & svo koma góðir dagar og þá les maður hana og hlær svo eftir á.
Dagurinn er varla byrjaður & mér líður mergjað vel!! Ég get varla líst því...ég vaknaði í morgun með sérstaklega - good feeling that it would be a good day. Allt gekk eitthvað svo greiðlega & svo var forfall hjá fyrsta kennara svo að ég fór að hugsa um mína nánustu & ákvað að blogga. Kannski er það líka vegna þess að ég er að fara að hitta vini mína í kvöld & þá er ég að tala um allan hópinn. Mig gengur frábærlega vel í skólanum & get varla beðið eftir að útskrifast, ég er ekkert að flýta mér, ég er bara mest þakklát fyrir að hafa þetta "skóla" tækifæri. Ég vona bara mest að fá að útskrifast með Hönnu vinkonu minni. Það skiptir frekar miklu máli. Ég gæti ekki átt betra líf & fyrir það er ég mest þakklát fyrir. Maður nefninlega á það til í að vanmeta lífið frekar en að gleðjast fyrir að hlutirnir eru ekki verri. Eitt sem að er búið að vera að bögga mig undanfarið er metingur. Mér finnst ég svo oft finna það nálægt mér að fólk er alltaf að mestast meira & keppast við aðra án þess að hinn aðilinn vita að það sé verið að keppa við hann. Do u know what I mean

Ætli þetta sé ekki bara þetta lífskapphlaup í nútímanum í dag. Ég fór einmitt að hugsa um daginn, um mig sem barn. Hversu ólík ég er sjálfri mér í dag, líkamlega jafnt sem persónulega. Sem barn að þá fann ég minn eigin smekk, ég var miklu meira sjálfstæð & bara ég sjálf heldur en í dag & satt að segja ætla ég mér að breyta þessu aftur. Sum sé að meta lífið meira. Þið sem að þekktuð mig sem barn munuð eflaust eftir því einnig hversu brosmild ég var. Ég var alltaf voðalega brosmild, hláturmild & ánægður krakki. Ég var alltaf á ferðinni með vinum & vandamönnum & svo átti ég líka til í að gera prakkarastrik eftir bróður mínum. Svo sem að kveikja í rusli, gera at, njósna á gluggum hjá fólki, reykja, hahahaha... ohhh hvað ég gæfi fyrir að upplifa þessa daga aftur. Góðir dagar & mig hlakkar til þegar að einn daginn er ég verð móðir að þá kannski fæ ég að upplifa þetta aftur með augum móður minnar í það sinn :) En til míns vinahóp að þá vil ég bara segja að ég get varla beðið eftir að hitta ykkur í kvöld & þið hin farið vel með ykkur

adios
ykkar Íris Dögg
Íris Dögg Guđjónsdóttir
01. september 2007 klukkan 21:29
Jæja vinir, vandamenn & bloggarar...

hvað er títt?

Ég er í þvílíku stuði & enn meira eftir að hafa horft pínu á þessa evrópsku dans keppni. Er sko bara komin í fílinginn. Hvaða herramaður vill bjóða mér upp í dans, ég bíð bara hehehehe...Skólinn byrjar bara vel hjá mér & í raun bara lífið sjálft. Ég hef þessa góðu tilfinningu að þetta verði góður vetur hjá mér, enda verð bráðum árinu eldri. Fortíðin er svona að fjarlægjast & nútíðin er efst í huga mínum núna. Að gera góða hluti, sem að ég veit að koma seinna til mín, ég skil mig & mín vandamál best :) þannig er það bara & ekkert fær því breytt. Ég vona bara svo sannarlega að engin manneskja þurfi að ganga í gegnum eins slæmar ástarsorgir eins & ég hef þurft að glíma við!! En burt séð frá því, ég er byrjuð vel í ræktinni & það styttist óðum í að ég geti keypt mér föt með daddys money. Pabbi sagði að þegar að ég grennti mig myndi hann gefa mér fatapening. Fyrir hver 5 kg, sem að ég losa mig við fæ ég fatapening, ligga ligga lá, lucky bitch am I. Hey, já OMG, af hverju þarf ÉG alltaf að gera mig að fífli & þegar að ég geri mig að fífli að þá er það í Sporthúsinu. Ég var búin að æfa í dag & geng að bílnum & opna hann með fjarstýringunni & svo sé ég ekkert ljós blikka á honum svo að ég var ekki að fatta. Nema svo fór ég að spá hvort að þetta væri kannski ekkert minn bíll. Svo lít ég fyrir aftan þennan bíl & sé þar annan nkl. eins bíl svo að aftur opna ég með fjarstýringunni en ekkert ljós kemur svo stend þarna hjá bílastæðunum í panic kasti & fannst mig bara vera að dreyma. Ég gekk í hringi hikstandi hvað væri að fjandans bílnum & skimaði aðeins um, neih kem ég þá ekki bara auga á þriðja bílinn nkl.!! eins & ljósin blikkuðu, bingó!! HVER annar getur þetta en ég. Mamma líka bara er ég kom heim "Íris Dögg leistu ekki á nr. plötuna" & þá kviknaði peran í höfðinu á mér & ég náttlega bara jaaaaaáááá. ÓTRÚLEGT!! Svo fór ég að reikna út hvenær c.a ég myndi útskrifast úr skólanum & ef að ég held áfram að standa mig svona vel & taka áfram svona margar einingar að þá myndi ég klára haustið 2009 en annars yrði það líklega vorönn eða haustönn 2010. Betra seint en aldrei my fellahs

En jæja er að spá í að fara út á videoleigu & leigja mér sound of music eða eitthvað álíka gott & gamalt!! Munið bara að fara vel með ykkur sjálf & það væri nú alveg gaman að fólk myndi svona fara að commenta meir & láta vita af sér að þið séuð að kíkja í heimsókn :) Svo er ég með eitt voðalega sniðugt á þessarri síðu sem að heitir gestabók. Jájá gamla góða gestabókin. Jæja íris mín hættu að vera freak!! heyrumst stuðboltar lov ya íris Dögg has left the building!! K.I.S.S.E.S & H.U.G.S
Íris Dögg Guđjónsdóttir
19. júní 2007 klukkan 11:15
Hey, ég kom heim á sunnudaginn 17.júní frá Danmörku. Það var mjög gaman, nauðsynlegt að komast út & slappa af miðað hvað seinasta eina & hálfa árið hefur boðið mér upp á. Það var killing hiti þarna úti, það sem að gerði þetta erfiðara var að það var alveg logn & engar viftur í húsinu. Ég var mjög sátt við að fá svona gylltan lit. Ég vil nefninlega ekki verða dekkri en ég er. Ég keypti ipod af Öldu systir, ég er svona að læra á þetta & svo ætla ég út að skokka. Ég fékk að fá frí í gær & í dag í vinnunni til þess að fara til tannsa. Ég var að borða purusteik úti í Danmörku & lenti í leiðinlegu atviki með tönnina mína. Ég ætla að vona að ég nái að kaupa mér gítar í sumar & læra á hann. Þar sem að vinir mínir verða farnir út til Spánar. Pabbi fer kannski til Flórída í sept., okt. & ég spurði hvort að ég mætti koma með & hann sagði að það gæti eflaust farið sem svo. Yössshhhh...ég vona það. Mig langar svooo að ferðast mikið í lífi mínu, enda fór ég ekki í þetta nám út af engu. Í flugvélinni á leið heim hitti ég Ernu vinkonu mína sem að var að ljúka námi í ferðabransanum. Hún var að fljúga sem flugfreyja & verður að því til sept. & fer þá að vinna á ferðaskrifstofu. Hún sagðist aldrei hafað skemmt sér eins vel í vinnunni & ég get vel ýmindað mér það & eflaust allir sem að eru í þessum bransa. Er ég fer á flugvelli að þá fæ ég svona sting í magann, því að mér finnst þetta svo spennandi. Að tékka fólkið inn, eða flugfreyju starfið eitthvað smá & svo tala ég nú ekki um ferðaskrifstofurnar. Á flugvellinum leið mér eins & litlum krakka að sjá eitthvað spennandi :-D Sigrún Ósk frænka mín er 24 ára í dag. Til hamingju með það skvís ;) Næst á dagskrá hjá mér er að vinna & halda áfram að hlúa að sjálfri mér & mínum markmiðum. Ég veit hljómar óspennandi. En hins vegar eru miklar vangaveltur hjá mér að reyna að vera hjá Ingva um jólin úti á Spáni. Það kemur allt saman í ljós. Ég ætla núna að skjótast til tannsa. Take care adios
Íris Dögg
Íris Dögg Guđjónsdóttir
02. júní 2007 klukkan 08:45
hæhæ...Jæja nú styttist þetta bara, minna en sólarhringur er ég verð komin til Danmerkur vúhúúú... það sem að mig hlakkar mest til er að fara í pottinn & gufubaðið sem að er þarna upp í bústaðnum. :D Í gærkvöldi hitti ég Ingva Hrafn & Pedro vini mína & ég hélt a.m.k eins & ég var að fá flensu. Við fengum okkur borgara á Vitabar en ég gat bara klárað helminginn af öllu. Helming af borgaranum, helming af frönskunum & helming af kókinu...ekki góð megrun :D hahahaha... Pedro var alltaf að segja ,,Íris þú ekki klára matinn þinn?" ég var að kveðja Pedro í gærkvöldi þar sem að hann er @ this moment í flugvél á leið til London & svo fer hann frá London & heim til sín til Spánar (nánar tiltekið Costa Del Sol) & verður þar í 6 mánuði...krakkar hvað geri ég án hans.... ég sakna hans svooooo mikið strax nú þegar... ég sakna Pedros minn (uhhhuuuu væli væl) En mest á ég eftir að sakna Ingva Hrafns sem að fer út í enda Júlí út til Pedros nema það að hann verður á Spáni til spurningarmerki? Líklega í slatta ár. Ég hitti hann eflaust næst í bingói fyrir aldraða niðri í bæ..niiii segi svona...hehehehehe Pedro sagði mér bara að passa upp á það að gera eins mikið við líf mitt & ég get. Aldrei að stoppa að lifa því með stæl til ítrustu...sem að er alveg satt hjá honum & það er akkurat það sem að ég ætla að gera. Mér líður samt í alvöru svakalega vel :) Ég er heilbrigð, á góða að bæði fjölskyldu & vini & hef mitt frelsi. Ég myndi ekki vilja breyta neinu af þessu fyrir neitt. Hey ég fór á KFC í gær & haldiði ekki bara að ég hafi gleymt afgangnum af peningum í bílalúgunni, þetta getur enginn nema ég!! Of mikið að gera um helgina...en jæja ég ætla að drífa mig í sturtu & alles I'll seee yaaa ;) Miss ya all :*
LOVE XXX Íris Dögg (ofurhetja)hehehe
Íris Dögg Guđjónsdóttir
20. maí 2007 klukkan 10:38
Hæ, Júlía frænka mín varð 10 ára um daginn & ég vil bara óska henni til hamingju með það!! Mamma & pabbi eru að fara til Þýskalands í næstu viku & er þá planið hjá mér að bjóða vinunum heim & mig hlakkar gg til. Ég var að vakna núna & mér líður frekar skringilega þar sem að mig dreymdi voða furðulegan draum eins & á hverri nóttu. Eitt af því sem að mig dreymdi í nótt var það að ég var að gifta mig á einhverjum veitingastað!! Frekar weird þar sem að mig langar helst aldrei að gifta mig. Ég er byrjuð í póstinum & mér finnst það ekki eins skemmtilegt & ég bjóst við en sem betur fer verð ég ekki lengi þarna. c.a 2 mánuði. Ég er komin með allar einkunnir & ég náði öllu. Mér gengur ekkert smá vel núna í skóla ef að ég miða mig við fortíð mína. Raunar að þá gengur mér allt í haginn núna & ég vil helst að ekkert breytist núna & síst af öllu vil ég kærasta þar sem að í fyrsta skiptið í langan tíma að þá líður mér vel einni. Það styttist í Danmörku svo er ég komin á nýtt mataræði frá Gassa. Ég gerði þau hrikaleg mistök að taka 12 msk. af Udo's olíu á einum degi en ég misskildi eitthvað & til að gera langa sögu stutta að þá átti ég bara að taka 2 yfir daginn. Þannig að þessi píning sem að var ekkert nauðsynleg var helvíti. Þetta var ógeðslegt. Eins & að drekka hálfa lýsisflösku. JAKK!! Týpískt ég!! (á fyndinn hátt)... En jæja best að fara fram úr & kíkja á Pedro & Ingva Hrafn!!
later :)
Íris Dögg Guđjónsdóttir
05. maí 2007 klukkan 00:47
Hæhæ...hóhó... Jæja nú er ég búin að gera onkuponsu pínulitlar breytingar á þessarri síðu, ég hef sett bloggarana á annan stað & eins & þið eflaust sjáið hér á vinstri hönd að ég hef sett inn myndbönd. Nú þekkið þið minn tónlistarsmekk - kind a like old school - aint it. Það var svo fyndin tilfinning er ég var að breyta síðunni minni, mér leið eins & ég væri að breyta minni eigin íbúð, hehehehehe. Seinustu daga hef ég verið með þessa þvílíka vellíðan & er ég sko nokk viss um að hækkandi sól á lofti hjálpar þar mikið til. Brrr... mér er samt kalt @ this moment. Ég er að spá í að fara að fjárfesta í einum gítar & gefa mér meiri tíma með sjálfri mér. Byrja bara á kassagítar & enda svo á queen lögum með rafmagnarann. Núna er ég í prófum með gg góðum tíma á milli. Þannig að ég er ekkert 100% að læra. En svo ætla ég að fá meiri hreyfingu í sumar & taka líkama mínum með trompi. Ég er komin yfir tvítugt (thank for that) með fínan líkama ef að ég bara hugsa betur um hann. & hananú!! Svo að ég ætla að skella mér í póstinn í sumar hérna úti á nesi. Svo styttist í fjölskylduferð til Danmerkur. Við höfum aldrei farið ALVEG ÖLL saman út í svona ferð svo að þetta er mjög spennandi. Jibbííí... Ég elska lífið núna & það besta er að ég er farin að treysta á sjálfa mig á ný!! 
Íris Dögg Guđjónsdóttir